|
Nám í náttúrulækningum –
HEILSUMEISTARANÁM á Íslandi
School
of Natural Medicine á Íslandi
(SNMÍ)
býður uppá einstaklega djúpt nám í almennum náttúrulækningum sem
færir nemundum fjölbreytta færni til að verða sannir meistarar í
náttúrulegri heilsu og heilun.
Heilsumeistaranám
SNMÍ er 3ja ára nám og hefst
haustið 2007. SNMÍ hefur verið með reglulega kennslu hérlendis
síðastliðin 10 ár og útskrifaði m.a. fyrstu íslensku
lithimnufræðingana árið 2000.
Heilsumeistaranám
er heiti námsins en erlend
starfsheiti eftir sambærileg nám er Naturopath eða Heilpraktiker.
Kennslan fer fram á þremur árum með kennslulotum vor og haust og
heimanámi.
Allir
nemar byrja námið á því vinna með eigin heilsu (Self Healing
module) undir leiðsögn Dr. Faridu Sharan og kennara námsins,
þessi sjálfsvinna heldur áfram í gegnum allt
námsferlið.
Meistaranám
í náttúrulækningum / heilsumeistaranám spannar
víðtæk greiningar- og meðferðarform sem nýtast í ráðgjöf og
meðferð sem sniðin er að mismunandi þörfum í átaki og
heilsuvernd fyrir hvern og
einn.
SNMI er
einstakur skóli í náttúrulækningum sem styðst við hraðnámstækni og
fjölgreindarþætti manneskjunnar í kennslu námsefnis auk þess sem
nemandi tileinkar sér þekkinguna í gegnum það að vinna með eigin
heilsu.
Innihald
námsins byggist á samþættum
kennslulotum;
1.
Master Iridology -
Lithimnufræði; fjarnám, verkefni og
kennsla
2.
Master Herbal Medicine -
Grasalækningar; fjarnám, verkefni og
kennsla
3.
Master Naturopathy - hagnýtar
náttúrulækningar;
fjarnám, verkefni og kennsla
4.
Naturopathic Immersion
- Samþætting allra
þátta; fagleg og hagnýt kennsla vor og
haustlotur
5.
Divinty Touch Reflexology -
Djúp-tengsla
svæðanudd
6.
Divinity Touch Essential Oils
Therapy -
Djúp-tengsla kjarnaolíunám
7.
Flower Essence Practitioner -
Blómadropar;
Meðferð og notkun íslenskra náttúrudropa.
8.
Living Food Lifestyle - Læknandi
fæði
9.
Purification, Regeneration and
Transformation Retreat - upplifun og
endurnýjun.
10. Lokaverkefni,
skýrslur.
Í SNMÍ er
litið er á manneskjuna sem þríþætta heild; líkama, anda og
sál og bæði líkamleg og andleg heilsa
skipta máli og að nemendur séu öðrum til
eftirbreytni.
Með
hugtakið innri vistfræði (inner ecology) að leiðarljósi og í
jafnvægi við hina ytri vistfræði náttúrunnar (outer ecology),
verður nemandinn fær um að leiða meðferð sem sem byggir á
þremur grunnþáttum; hreinsun, uppbyggingu og umbreytingu
(purification, regeneration, transformation) sem eru
lykilhugtök í námi og kennslu SNMÍ. Áhersla er á lífsstíl og
fæði og í náminu er m.a. námskeið í lifandi fæði og
hreinsunar- og endurnýjunarnámskeið fyrir
nemendur.
Við mælum
eindregið með því að áhugasamir kynni sér vefsíðu
skólans: www.purehealth.com.
Kennsla mun
fara fram um helgar og síðdegis.
Gert er ráð
fyrir að nemendur geti stundað vinnu með
náminu.
Heildarkostnaður
við námið er 16.000 dollarar og munu nemendur geta greitt
námsgjöld með mánaðarlegum
greiðslum.
Óskað
verður eftir lánshæfi hjá Lánasjóði Íslenskra
námsmanna.
Inntökuskilyrði
Formleg
umsókn
Enska úr
menntaskóla
Eigin
heilsuvernd/heilsumeðferð í amk. 3
mánuði
Skilyrði
til að útskrifast er að hafa setið kennslu og námskeið, að hafa
lokið verkefnum og sjúkraskýrslum.
Að auki þarf
eftirfarandi menntaskólafög; Líffæra-
og lífeðlisfræði 1 og 2, Sjúkdómafræði
og Siðfræði
heilbrigðisstétta.
Námið er
alþjóðlega viðurkennt nám og nemendur fá ND Naturopath
Diploma.
Útskrifaðir
Heilsumeistarar hafa rétt til að verða skráðir græðarar á Íslandi
samkvæmt lögum um Bandalag Íslenskra
græðara.
Umsjónarmenn
námsins á Íslandi eru:
Lilja Oddsdóttir
(848 9585) og Gitte Lassen (861
3174)
healthmaster.snmi@gmail.com Þetta netfang er
varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að
skoða það
www.purehealth.comwww.purehealth.comwww.purehealth.comwww.purehealth.com
Blogg: http://www.independentlyhealthy.typepad.com/ |